Um kmk
Konur með konum er hópur lesbía og tvíkynhneigðra kvenna innan og utan Samtakanna ´78. Rætur hópsins má rekja allt til ársins 1985 er Íslensk-lesbíska var stofnað. Markmiðið með starfi hópsins er að efla tengsl á meðal lesbía og tvíkynhneigðra kvenna með því að stuðla að félagslífi, auka samstöðu og samheldni og að efla meðvitund kvenna í mannréttindabaráttu samkynhneigðra og tvíkynhneigðra.
Íslensk lesbíska (1985 - 1987)
Íslensk lesbíska er upphafið að kvennastarfi lesbía í Reykjavík. 1985 tóku lesbíur sig saman en Samtökin 78 voru þá vígi karlanna. Íslensk lesbíska varð til, með vissum kvennapólitískum blæ, markvisst til að gera lesbíur sýnilegar innan kvenna-hreyfingarinnar. Lesbíur vildu marka sér pláss þar og mótmæla á vissan hátt karlaveldi í Samtökunum 78. Hópurinn fékk inni í Hótel Vík, þar sem ýmsir hópar kvenna höfðu aðstöðu, m.a. Samtök kvenna á vinnumarkaði, kvennaráðgjöfin, Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna. Húsið var þá í eigu og rekstri Kvennalistans. Ekki voru allar konur sáttar við að lesbíur hefðu þar aðstöðu, sem kom fram þegar merkja átti húsið með nöfnum þeirra hópa sem þar störfuðu. Hluti af markmiðunum með starfinu var sýnileikinn og var mikilvægt fyrir hópinn að allar konur ættu athvarf í kvennahúsinu (sýnileikabarátta). Haldin voru opin hús, bókmenntakynningar o.fl. Íslensk lesbísaka starfaði árin 85-87, en hætti þegar starfsemi í húsinu lagðist niður.
KMK (1992 - 1995)
Nokkurra ára hlé varð á kvennastarfinu, en það tók mikinn kipp þegar Bogga Ísleifs tók sig til og stóð fyrir kvennakvöldum á árinu 1992. Ekkert sérstakt starf var á vegum Samtakanna 78 fyrir konur á þessum árum og var þetta kærkomin skemmtun. Á kvennakvöldunum seldi hún bjór og safnaði í sjóð, sem hún afhenti KMK á stofnfundi, 7. mars 1993. Samkeppni hafði verið um hugmyndir að nafni og var Konur með konum hlutskarpast. Þá var ákveðið að hafa tvo gjaldkera. Valdar voru tvær framkvæmdastýrur sem sáu um dagskrá 2 mánuði í senn. Reynt var að rukka félagsgjald við litlar undirtektir. Megin tekjulind KMK var því bjórsala og aðgangseyrir að samkomum. Kröftugt starf var á árunum 1993-94 og ber líklega hæst "Samtakaballið" þar sem konur sáu um öll skemmtiatriðin. Þar var m.a. boðið upp á ballettsýningu, leikþátt o.fl. Haldin voru kvennakvöld, með ýmisri dagskrá, m.a. ljóðalestri og upplestri. KMK stóð einnig fyrir frægum grímudansleik, pönnukökuskemmtun, Góugleði, sumarbústaðaferðum, fótboltaæfingum á Miklatúni, gönguferðum í nágrenni Reykjavíkur um helgar. o.m.fl.
Grasrótarhreyfing (1996 - 2001)
KMK, er uppphaflega grasrótarhreyfing til að auka fjölbreytni dagskrár fyrir konur með konum í og utan Samtakanna 78. Hugsjónin byggðist á frumkvæði kvenna, koma með hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd. Það hljóðnaði yfir hópnum um tíma, en 24. apríl 1996 var hann endurvakinn aftur eftir dvala. Ekki stóð sú vakning lengi því í dagbækur er aftur skráð að 1998 hafi enn verið gerð tilraun til að vekja starfsemina af 2 ára dvala. 1996 var kosin 5 manna stjórn, haldin voru nokkur opin hús og Góugleði. Starfið lá niðri að mestu leiti í nokkur ár, nema hvað röskar konur stóðu fyrir útilegum og gönguferðum í nafni KMK og árið 2000 var haldinn dansleikur sem tókst með ágætum.
Á samráðsdögum stjórnar samtakanna 78 og trúnaðarráðs 2001, var rætt að auka starf fyrir konur. Lá beinast við að gera það undir merkjum KMK, þrjár konur voru valdar til að undirbúa starfið. Dagskráratriði skyldu vera með þeim hætti að efni þeirra næði til sem flestra lesbía. Þetta er mjög breiður hópur, ungar og eldri, einhleypar, giftar eða í sambúð, með fjölskyldu eða barnlausar. Markmiðið var að höfða til sem flestra og þá kannski ekki síst þeirra sem sjaldan sjást sem þátttakendur á vettvangi Samtakanna 78.
Gazellurnar
KMK átti frækið róðrarlið,
Það keppti í róðrarkeppni Sjómannadagsins í 6 ár. Af einhverjum ástæðum fengu þær aldrei bikarinn afhentann til eignar, eftir sigur þrjú ár í röð, eins
og lög gera ráð fyrir
2001 - 2005
Frá 2001 hefur uppbygging starfsins verið með besta móti og má segja að eitthvað sé a döfinni i hverjum mánuði. Blakliðið æfir einu sinni i viku og hefur keppt undanfarin ár á alþjóðlegu lesbísku blakmóti sem fram fer Evrópu ár hvert. 2005 átti KMK tvö lið í mótinu. Fyrsta þriðjudagskvöld í mánuði hittast konur og spila keilu eða snoker. Árlegir viðburðir skipa sér orðið sess í dagskránni og má þar nefna: Góugleði í mars, veiðiferð í júní, sumarútilegu í júlí, Bókmenntakvöld í desember auk kvennakvölda þegar þurfa þykir.
Hinsegin dagar
KMK tekur virkan þátt í Hinsegin dögum. <br />
Báðir göngustjórar Gay Pride göngunnar undanfarin ár eru fulltrúar KMK í gay Pride nefndinni. Aðrar KMK konur hafa staðið fyrir atriðum í göngunni og tekið þátt í skipulagningu dansleikja á Hinsegin dögum.
Starfiğ í dag
KMK er enn grasrótarhreyfing í anda upphafsáranna. Á endurfundi í september er kosin þriggja kvenna stjórn sem stýrir starfinu á milli endurfunda. Stjórnarkonur hvetja til frumkvæðis og hugmyndaauðgi félaganna ræður ferðinni. Stjórnin heldur einnig úti öflugri heimasíðu sem er samnefnari fyrir upplýsingastreymi og sýnileika félagsstarfsins. Á vormánuðum 2005 voru hart nær 200 konur á félagaskrá. Páskana 2007 var haldið hér á landi alþjóðlegt lesbískt blakmót. Hátt upp í 200 þáttakendur komu frá Evrópu og þóttist mótið takast mjög vel. Eiga skipuleggjendur mótsins hrós skilið fyrir flott mót. Nóvember 2007 var í fyrsta sinn kosin fimm manna stjórn og eru konur hátt í 300 á félagaskrá.

