headerphoto

KMK sport

Miðvikudaginn 3. september hófst loksins blakvertíðin að nýju eftir langt sumarfrí!
Blaklið KMK er að hefja sitt sjöunda tímabil og munu æfingarnar í vetur verða á miðvikudögum kl. 21:20-22:30, í Árbæjarskóla. Til viðbótar við æfingarnar munum við svo stefna á þau fjölmörgu hraðmót sem verða í boði út um allt land í allan vetur og endum svo á hinu fjölmenna Öldungamóti á Seyðisfirði í maí.
Þótt nýjar blakkonur séu ávallt velkomnar á æfingar yfir veturinn þá ætlum við að hafa september sem sérstakan nýliðamánuð. Þá hvetjum við áhugasamar stelpur/konur alveg sérstaklega til að mæta og læra blak alveg frá grunni. Að þeim mánuði loknum verður sérstakt nýliða húllumhæ.
Á bloggsíðu liðsins, http://kmk.blogcentral.is/, má svo finna allar upplýsingar um liðið og þar munu einnig allar fréttir og tilkynningar birtast. Á síðunni er núna hægt að skoða myndband sem sýnir brot af því sem liðið hefur haft fyrir stafni undanfarin ár.
Nánari upplýsingar verða fúslega veittar hjá Kristínu s: 898-3060, Fríðu s: 866-8246 og Kollu s: 615-1579
Verið endilega með frá byrjun!
Blaklið KMK

Fótbolti
Í vetur eru fótboltaæfingar hjá Lez-jungle hópnum í Sporthúsinu kl. 19 alla fimmtudaga. Sjá nánar á http://www.lez-jungle.com/ Einnig er hægt að senda póst á lezjungle(hjá)gmail.com
Á sumrin tekur blakið sér frí og fótboltinn tekinn upp í staðinn. Hist er alla fimmtudaga kl. 18.00 og tuðrunni sparkað. Þetta eru engar markvissar æfingar heldur bara fullt af hressum stelpum sem hafa gaman af að spila fótbolta. Hist er austanmegin á túninu(nær Lönguhlíð) en þó vestanmegin við fótboltavöllinn. Ef komið er á bíl er ágætt að leggja honum við Kjarvalstaði og ganga svo vinstramegin við húsið og í átt að Lönguhlíð.
Mæting kl. 18.00 og spilað eins lengi og þrek og veður lofar.
Þær sem ekki vita hvar Miklatún er þá er það túnið milli Miklubrautar og Flókagötu. (Kjarvalstaðir eru á Miklatúni).

Gönguhópurinn í Elliðaárdalnum
Gönguhópurinn hefur færst sig um set og mun ganga í vor og sumar í Elliðaárdalnum á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30. Gengið er frá bílastæðinu við neðstu göngubrúnna.  Mestu máli skiptir að koma og vera með í skemmtilegum félagsskap og velja hraða sem hentar hverjum einstaklingi fyrir sig. Umræðuvefur gönguhópsins, http://gangaoghlaup.proboards101.com.
Liðstjóri er Inga Margrét Róbertsdóttir. Hægt er að hafa samband við hana í síma 8 999 123 eða senda henni póst á netfangið imr@simnet.is
Sjáumst í Elliðaárdalnum á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30

Keila
Af og til hittast KMK konur í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og þeyta þungum kúlum eftir keilubrautinni og reyna hvað þær geta að hrinda keilum um koll. Hafir þú áhuga á að rífa stelpurnar af stað sendu okkur línu kmk@kmk.is og við skulum koma skilaboðunum áleiðis.

Göngu- og hlauphópurinn
Nokkuð hefur verið rætt um að konur taki sig saman um að ganga og/eða hlaupa. Hafir þú áhuga á þessu og vilt koma með hugmyndir um göngur, stuttar sem langar þá sendu okkur póst kmk@kmk.is og við komum því áleiðis til áhugasamra kvenna og auglýsum.

Golf
KMK hefur haldið golfmót tvisvar sinnum og ljóst er að áhugi fyrir golfi er mikill innan hópsins. Langar þig með? Sendu þá póst á kmk@kmk.is og láttu vita af áhuga þínum.

Hugmyndir
Ef þú ert með fleiri hugmyndir um íþróttaiðkun eða annarskonar iðkun hafðu þá samband við okkur kmk@kmk.is og við hjálpumst að við að koma henni í gang.