2008-2009
16. júní Golfmót KMK
Golfmót KMK fór fram á Ljúflingi, æfingavöllur Oddi í Hafnarfirði. 20 konur tóku þátt og heppnaðist þetta einkar vel. KMK þakkar skipuleggjendum kærlega fyrir flott mót og glæsileg verðlaun en þau komu frá SS, Te & Kaffi, BK kjúkling, Golfbúðinni og Happaþrennu Háskólans.
7. mars Góugleði 2009
Góugleði 2009 var haldin á Silfur restaurant við Austurvöll. 96 konur mættu í mat, 60 komu á ballið á eftir. Ólafía Hrönn Jónsdóttir var veislustjóri, Margrét Pála heiðursgestur. Listamenn sem komu fram; Chaplin, Lilja & Bogga, Elín & Mirra og Viggó & Víoletta frá skemmtistaðnum Barböru. DJ Glimmer sáu um tónlistina á ballinu og voru frábærar. KMK þakkar kærlega öllum þeim sem fram komu.
7. febrúar Kökubasar
Kökubasarinn tókst vonum framar. 33 konur og 8 börn lögðu leið sína í Regnbogasalinn, já og einn karlmaður, faðir síðustjórans mætti að sjálfsögðu.. Allar kökur seldust nánast upp. Við hjá KMK viljum þakka Kollu hennar Steinunnar og Fríðu Agnars. kærlega fyrir aðstoðina en þær lögðu 3 kökur og pönnsur í pottinn. Takk stelpur! Eins viljum við þakka Te & Kaffi fyrir kaffið - það voru 3 tegundir í boðið, After Dinner, Columbia Supremo og Costa Rica. Hvert öðru betra.
L-Word partý 17. janúar
Season 1 af L-Word var sýnt í Regnbogasal Samtakanna 78, laugardagskvöldið 17. janúar nk. Þetta kvöld átti að vera fjáröflun fyrir KMK en tókst nú ekki mjög vel. Dræm þáttaka og lítið sem ekkert verslað af barnum. Jæja, það þýðir ekki að leggja árar í bát, við spýtum bara í lófana og höldum áfram að undirbúa viðburði fyrir ykkur.
20. desember - Fyrirpartý fyrir konur á Qbar
Dræm mæting í fyrirpartýið en Jólaballið frábært um kvöldið.
6. desember - Jólabókakvöld KMK
Frábært kvöld tileinkað minningu Kötlu Sigurgeirsdóttur. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Katrín Ómarsdóttir lásu uppúr sínum verkum. Vigdís Grímsdóttir las ljóð eftir Kötlu. Auður las einnig uppúr bók Guðrúnar Evu Mínervudóttur og Svana las uppúr bókinni um Grýlu eða Margréti Pálu. Einnig var úr heimildarmynd um Kötlu. Um 60 konur mættu. KMK þakkar skipuleggjendum kærlega fyrir þetta kvöld.
30. nóvember - Kveikt á jólatrénu á Austurvelli
40 manns (20 mæður, 4 feður og 16 börn) þáðu kakó og piparkökur í Regnbogasal á eftir. Frábær skemmtun.
29. nóvember - Quiz kvöld í Regnbogasalnum
32 konur mættu í spurningakeppni í boði KMK og Samtakanna. GR-Group stóðu uppi sem sigurvegarar með 17 rétt svör. Hlutu í verðlaun bjórkassa frá Samtökunum.
2007-2008
Kvennagrill á veitingastaðnum Af lífi og sál, laugardaginn 19. júlí
19. júlí var kvenna/lesbíugrill á matsölustaðnum Af Lífi og sál, að Laugavegi 55b. Garðurinn hreinlega fylltist af skemmtilegum og hressum konum í hinsegin skapi!
Golfmót kmk 14. júlí
Golfmót KMK var haldið á Golfvelli Álftaness, mánudaginn 14. júlí. 18 konur kepptu og leiknar voru 9 holur eftir reglum Texas scramble. Umsjónarkonur mótsins vour Bogga Ísleifs - Kolla - Steinunn. G. Í 1. sæti voru Bogga og Drífa – Verðlaun: Risa sælgætiskörfur frá Nóa og Siríus, gjafabréf á Friday´s og golfkúlur frá Sjóvá. 2. sæti Fríða Andersen og Vallý – Verðlaun: Gjafabréf á Sólon og usb minnislyklar frá Yfirliti. 3. sæti Inga og Elsa – Verðlaun: Ísveisla frá Kjörís og usb minnislyklar frá Yfirliti. 4. sæti Cicci og Fríða Óskars – Verðlaun: Golfskópokar og gjafabréf á BK kjúklinga.
Hítarvatn 4. - 6. júlí
Helgin heppnaðist vel. Gott veður var og mættu 34 konur + börn. Skálinn þótti þó ekki vera eins og búist var við og gisti víst engin þar, allar í tjöldum. Þökkum öllum sem mættu fyrir komuna og kmk gerir ráð fyrir því að velja nýja staðsetningu að ári. Þannig að takið bara helgina strax frá.
Fjölskyldudagur í Heiðmörk 14. júní
Fjölskyldudagur KMK var haldinn í Furulundi í Heiðmörk og tókst mjög vel. Um 30 mæður mættu og um 20 börn. Allur matur kláraðist og er alveg ljóst að bæta verður í að ári. Það er alveg á hreinu að þessi fjölskyldudagur er kominn til að vera. Þökkum ykkur öllum fyrir komuna - það var allt með okkur þennan dag!
Eurovisionpartý 24. maí
30 konur mættu til að horfa saman á Eurovision 2008, borða pizzu og bjór. Mikil og góð stemmning í salnum. Takk stelpur fyrir að mæta og taka þátt í þessu með okkur.
Félagsvist 16. apríl
12 konur spiluðu og heppnaðist kvöldið vel. Fríða Agnars. var í fyrsta sæti hjá konum (og overall). Fríða Ó. var í fyrsta sæti hjá körlum. Kolla fékk skammarverðlaun (overall) og Kolla var líka neðst hjá konum. Skrítið þetta með nöfnin!!!
Ljósmyndasýning í Regnbogasal
Karla Dögg Karlsdóttir opnaði ljósmyndasýningu í Regnbogasalnum laugardaginn 15. mars kl. 15. Myndirnar eru teknar í hennar fyrstu ferð til Berlínar sumarið 2007. Sýning stendur yfir til júní 2008.
Góugleði 1. mars
Góugleðin var haldin á Gauk á Stöng. 73 konur mættu í matinn, Svana var veislustjóri, Elín Eyþórs & Mirra spiluðu, The Nanas tróðu líka upp og Halla Himintungl eða Gosi öllu heldur mætti og tryllti æstar lesbíur. Ragnhildur superbloggari hélt svo ræðu kvöldsins. Andrea Jóns hélt að lokum uppi stanslausu rokkstuði á dansgólfinu frameftir kvöldi. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá svona breiðan hóp íslenskra lesbía, á öllum aldri skemmta sér saman.
Nuddnámskeið & frír Bjór 15. febrúar
Nuddnámskeið var haldið 15. febrúar og þær sem keyptu sér miða Góugleðina fengu frían bjór. Nokkrar konur sem þegar höfðu keypt sér miða, sóttu sinn bjór um kvöldið.
Nuddararnir Helga Olgeirsdóttir & Hrafnhildur Eiríksdóttir frá Nuddskóla Íslands leiðbeindu og námskeiðið heppnaðist rosalega vel. 18 konur mættu og lærðum við handtökin við að nudda háls, axlir, handleggi, hrygg og höfuð. KMK þakkar Helgu og Hrafnhildi kærlega fyrir þeirra framtak.
Afterwork hittingur á Black
7. febrúar var hittingur á Black. Þar komu stelpur saman milli kl. 18-21 og fengur sér bjór og kaffi. Miðar voru seldir á Góugleðina.
Butch´n Femme stelpudjamm
26. janúar var Butch´n Femme stelpudjamm á Black. Skyrti, bindi, hælar, kjólar. Ertu Butch eða Femme? Ertu hvorugt? Ertu til í að djamma með okkur? Húsfyllir var á Black og skemmtu stelpur sér vel langt fram eftir nóttu. Vonandi sjáum við sem flestar sem þarna voru á Góugleðinni 1. mars.
Námskeið "Blandaðu þér í hópinn" 23 . janúar
Haldið var tveggja tíma námskeið í Regnbogasalnum, "Blandaðu þér í hópinn". Gott námskeið og Svana, leiðbeinandi, gaf alla vinnu sína til styrktar kmk. Takk Svana fyrir þitt framlag. Það olli óneitanlega örlítlum vonbrigðum hversu fáar lesbíur nýttu sér þetta frábæra námskeið en athygli vakti að ein kona kom, sem þykir nú ekki merkilegt, nema hún er "straight". Las um námskeiðið í morgunblaðinu og ákvað að skella sér.
Portrait kvöld 12. janúar
Portrait kvöld var haldið í Regnbogasalnum laugardagskvöldið 12. janúar. 15 konur máluðu flottar sjálfsmyndir og kvöldið heppnaðist rosalega vel. Ásdís kom með tvo góða gesti, sem fóru um salinn og leiðbeindu og reyndu að hrósa sumum sem litla reynslu eða sjálfstraust höfðu í svona málun. Síðustjórinn þurfti sko sérstaklega á því að halda! Eins mættu nokkrar sem kusu að mála ekki og sem fyrr stóð Fríða við barinn. Það er greinilegt að meðal íslenskra lesbía eru stórgóðir málarar. Verkin munu verða til sýnis í Regnbogasalnum út janúar og hvetjum við alla að koma og skoða myndirnar. Annað Portrait kvöld er fyrirhugað í haust.
Fyrirpartý á Qbar 15. desember
Fyrirpartýið heppnaðist bara mjög vel og nokkur ný andlit sáust inná milli gamalla. Ballið sjálft var skemmtilegt og góð upphitun fyrir áramótaballið.
Jólabingó 6. desember
Jólabingóið var haldið á Q-bar, það var húsfyllir og varð að ná í auka stóla í Regnbogasalinn. Kvöldið heppnaðist frábærlega og skemmtu allir sér mjög vel. Vinningarnir voru sérlega glæsilegir og óska ég Þóru og Klöru til hamingju með Barecelona ferð og Hröbbu til hamingju með sinn privat flugmiða. Sem fyrr hirti Eileen líka vinning og Unnur fékk jólaþrifin sem mig dauðlangaði í. Það geta víst ekki allir unnið.
Kveikt á jólatrénu við Austurvöll 2. desember
Það mættu 24 konur og 15 börn saman niður við Austurvöll þegar kveikt var á jólatrénu frá Osló. Þetta var meiriháttar vel mætt og gaman að sjá öll börnin, svona líka sæt og góð. Vallý var búin að hita kakó, þeyta rjóma og baka piparkökur sem beið okkar þegar við komum köld og veðurbarin eftir að hafa horft á jólasveinana, grýlu og Gosa.
Bókmenntakvöld 1. desember
Jólabókmenntakvöld var haldið í Regnbogasalnum laugardagskvöldið 1. desember kl. 20:30. Alls mættu 40 konur og tókst þetta mjög vel. Þær sem skipulögðu kvöldið eiga hrós skilið fyrir virkilega vel heppnað kvöld. (Þá fóru flestar á Organ á eftir til þess að sjá dj Birnu og Evu Maríu spila).
Þessir rithöfundar mættu og lásu upp úr verkum sýnum:
Halldóra Thoroddsen
Ingibjörg Haraldsdóttir
Ingunn Snædal
Jónína Leósdóttir
Vigdís Grímsdóttir - Viðar Eggertsson kom og las
Þórunn Valdimarsdóttir
Ljósmyndasýning 29. nóvember kl. 20
Tinni á Íslandi
Fimmtudagskvöldið 29. nóvember var opnuð ljósmyndasýning Hörpa Másdóttur „Tinni á Íslandi“ í Regnbogasal Samtakanna 78. Mjög vel mætt var á opnunina, um 50 manns. Sýningin verður út janúar 2008.
Vel heppnað kvöld
Fyrsta skemmtun haustsins 2007 var haldin laugardagskvöldið 24. nóvember. Þá kom Arnar frá Vín & Matur og kynnti rauðvín og hvítvín sem og það var smakkað á öllu. Það voru 31 kona í Regnbogasalnum á meðan vínsmökkun stóð, 21 sem tók þátt. Þessi þáttaka var alveg meiriháttar og greinilegt að konur höfðu beðið þessa kvölds með mikilli eftirvæntingu. Fleiri stúlkur mættu svo á svæðið eftir smökkunina og allar skemmtu þær sér rosalega vel. Einnig komu 15 stelpur með flösku sem fór í pott og voru dregnar út 3 konur. Ásdís fékk 10 flöskur, Kolla 3 og Gústa 2 (ég vona að ég fari með nöfn vinningshafa rétt..). Fríða stóð á barnum allt kvöldið og þökkum við henni kærlega fyrir hjálpina. Takk stelpur fyrir að gera þetta kvöld svona flott og skemmtilegt. Sjá myndir á myndasíðu.

