Framundan |
Góugleði KMK 6. mars |
|
Hin óviðjafnanlega árlega Góugleði veður að þessu sinni haldin á Skólabrú.
Miðaverð verður það sama og í fyrra kr. 5.500.- þrátt fyrir að allt annað
hafi hækkað á okkur í þjóðfélaginu.....Dagskrá hefst að venju með fordrykk
kl. 19.00. Forréttur: Sjávarrétta Sinfónía (Skötuselur, Tígrisrækja,, humar á spjóti, ferskt salat með austurlenskri dressingu) Aðalréttur: Glóðaður lambavöðvi m/brúarkartöflu, madeira soðgljáa, ristaðri papriku og fersku salati. Á eftir er boðið upp á kaffi og heimalagað konfekt. Veislustýra er hin óviðjafnanlega dreifbýliskona Garún........... Heiðursgestur okkar er Andrea Gylfadóttir Aðrir gestir: Rokkslæðurnar Kristín Eysteins, Kidda Rokk og Dísa, aldrei að vita nema Gréta slæðist í bæinn! Helga Möller kíkir á okkur, Elín Eyþórs lætur sig ekki vanta og leynigestur kemur til landsins til að heiðra samkomuna. DJ Dagný Borge sér um næturtónana. Miðasala: miðarnir eru seldir í Iðu Lækjargötu og Skólabrú. Einnig er hægt að senda inn pöntun á KMK@kmk.is og millifæra síðan inn á reikning félagsins og verða þá miðarnir klárir við innganginn: Sjö kvenna nefnd undir styrkri stjórn Boggu Ísleifs vinnur nú hörðum höndum að skipulagningu og dagskráin verður ekki af verri endanum. Þeir sem eru svo óheppnir að komast ekki í matinn og ætla að mæta á ballið: Húsið opnar kl. 23.30 og kostar 1.000 kr. inn. Viðburðurinn á síðu á fésbók, þar er hægt að skrá sig eða senda okkur
tölvupóst á
kmk@kmk.is |
|
--♀♀---- |
|
|
30. janúarLez Jungle GIRLS NIGHT OUT með Dj Dick & Dyke! |
|
Alvöru stelpuball þar sem að
STEMMNINGIN er í fyrirrúmi, Hvar: Á Batteríinu Miðaverð: 500 kr. Góð dansiböll fyrir stelpur eru ekki sjálfgefin þessa dagana. Rautt bindi, rauður varalitur, rauður kjóll, rauð skyrta eða hreinlega bara túrbótími í ljósabekknum er eitthvað sem við væntum þess að sjá í blússandi stemmningu og alvöru danstónlist frá Dj Dick & Dyke sem þið þekkið auðvitað frá Barböru. |
|
---♀♀---- |
Open mike í kjallaranum á Skólabrú |
Föstudaginn 15. janúar kl. 20.00 verður ,,Open mike" í kjallaranum á Skólabrú. Frábært tilboð á mat og drykk; Open mike þýðir að allir hafa tækifæri til að láta ljós sitt skína, hvort heldur sem er upplestur, uppistand, tónlist, ljóð, brandara, gítarinn, söngröddina, eða hvað svo sem er..... Ertu trúðurinn, söngröddin eða stuðboltinn? |
Bókmenntakvöld 5. des. |
|
Árlegt bókmenntakvöld KMK verður haldið laugardaginn 5. desember n.k. í
Samtökunum, Laugavegi 3. Húsið opnar klukkan 20.00 en upplestur hefst kl.
20.30.Bókmenntakvöld í jólamánuði er árlegur viðburður hjá KMK og er afar
vinsæll. Þar lesa rithöfundar upp úr nýjum bókum sínum. Að þessu sinni
verður lesið upp úr verkum fjögurra skáldkvenna. Þetta er tilvalinn
vettvangur að koma og hlusta á góðan skáldskap og njóta kvöldstundar í hópi
fagurra kvenna.
Lesið verður upp úr eftirfarandi bókum:
Hjá brúnni
Spor
komin til að
vera, nóttin
Svuntustrengur |
|
---♀♀---- |
Jólabingó 3. des |
| Jólabingó Samtakanna ´78 verður haldið 3. desember n.k. Bingóið hefur stækkað ár frá ári og nú er svo komið að ekki dugar annað en sjálf bingóhöllin í Vinabæ. Jólabingóið hefur fyrir löngu skipað sér fastan sess í jólaundirbúningi margra, enda um að ræða stórskemmtilegt kvöld þar sem mögulegt er að vinna fjölda vinninga sem geta t.d. nýst sem jólagjafir eða komið í góðar þarfir hjá vinningshafanum sjálfum. |
|
---♀♀---- |
Ný stjórn KMK |
|
Ný stjórn Kmk hefur verið kosin en hana skipa; Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
María Jónsdóttir, Rúna H. Hilmarsdóttir og Svanfríður Anna Lárusdóttir. |
|
|

